Pallahjól

Leggjum okkar að mörkum til styrktar Hlaðgerðarkoti og Sumarbúðunum í Reykjadal

Palla hjól í samstarfi við Golfklúbb Mosfellsbæjar (GM) heldur Hjólreiðamót, Palla hjól, til styrktar Hlaðgerðarkoti   og Sumarbúðunum í Reykjadal . Mótið fer fram laugardaginn 22. maí 2021 og  verða fyrstu holl ræst út kl. 9:00 og síðasta kl. 12:00.

 

Hjólað verður frá GM og verða tvær hjólaleiðir í boði, annarsvegar Mosfellsheiðaráskorun (45km) og hinsvegar Fjölskylduvænn Mosfellshringur (10km). Ræst verður frá Golfskálanum eins og áður segir milli 9:00 og 12:00 Mótsgjald verður kr. 3.000 og rennur óskipt til málefnisins (frítt fyrir 14 ára og yngri).

 

Til að ekki komi til hópamyndana í Mosfellsheiðaráskorun verður búinn til viðburður í forritinu Strava og geta þátttakendur hjólað leiðina hvenær sem er svo lengi sem byrjað er að hjóla fyrir kl:12:00 þá ættu allir að vera búnir fyrir kl 15:00. Haldið verður utan um skráningar og greiðslur þátttökugjalds í skráningarkerfi GM. Mótsgjald verður kr. 3.000 og rennur óskipt til málefnisins.

Skráning  hér

Hleð inn ...
Pallahjól
Hafðu sambandi

Sendu okkur skilaboð

Ekki læsilegt? Skipta um texta. captcha txt
0